Lýsing
Miðaverð
Forsala helgarpassa: 11.900 kr. (ATH: Takmarkaður fjöldi miða í forsölu til 1. apríl)
Helgarpassi: 13.900 kr.
Stakt kvöld: 8.900 kr. (fer í sölu 6. júlí ef það verður ekki uppselt á hátíðina)
Upplýsingar um fyrirkomulag
- Í kaupferli þarf að skrá nöfn og kennitölur allra handhafa miða
- Eftir kaup fær kaupandi senda rafræna miða með QR kóða
- Gegn framvísun rafræna miðans samhliða skilríkjum fá hátíðargestir armbönd á hátíðarsvæði
- Armbönd eru sett á handhafa á hátíðarsvæði, ekki er hægt að fá armbönd afhent í lausu
- Hátíðarhaldarar áskilja sér rétt til að óska eftir framvísun skilríkja hvenær sem er á meðan hátíð stendur
- Miðar og armbönd einstaklinga undir 18 ára aldri verða gerð ógild og verða ekki endurgreidd
- Ekki er hægt að breyta nöfnum á rafrænum miðum
- Hægt er að fara fram á endurgreiðslu á miðakaupum sem gerð hafa verið í gegnum vefsíðu Kótelettunar í allt að 14 daga frá kaupum. Þetta á hinsvegar ekki við um beiðnir um endurgreiðslur sem berast þegar minna en 14 dagar eru í auglýstan viðburð.
Já, en hvað ef? Covid-19?
- Ekki hafa áhyggjur.
- Ef Kótelettan 2022 fellur niður af sóttvarnarástæðum, þá færast miðarnir sjálfkrafa á Kótelettuna 2023 eða kaupandi getur óskað eftir fullri endurgreiðslu til og með 30.6.2022.
- Ef dagsetning Kótelettunnar 2022 breytist af sóttvarnarástæðum, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýjar dagsetningar. Ef þær henta hinsvegar ekki getur kaupandi óskað eftir að miði sé færður yfir á Kótelettuna 2023 eða óskað eftir fullri endurgreiðslu í allt að 7 daga eftir tilkynningu um nýjar dagsetningar fyrir Kótelettuna 2022. Tilkynning mun birtast á Facebook, Kotelettan.is og send í tölvupósti á miðaeigendur.
Dagskrá Kótelettunnar Music Festival verður kynnt á Facebook fram að hátíðardegi.
Hlökkum til að sjá þig á Kótelettunni 2022!