Tjaldsvæði Kótelettunnar 2026 - við Suðurhóla
velkomin á tjaldsvæðið við Suðurhóla á Selfossi á Kótelettunni 2026
Tjaldsvæðið við Suðurhóla er bráðabirgða tjaldsvæði sem tekið er í notkun í tengslum við Bæjarhátíðina Kótelettuna helgina 9 – 12 júlí 2026.
Vinsamlega kynnið ykkur nánar hér að neða umgengnisreglur og aðrar upplýsingar varðandi tjaldsvæðið sem er í umsjá Handknattleiksdeildar Selfoss.
almennar upplýsingar:
Opnunartími – Tjaldsvæðið opnar fyrir gesti föstudaginn 10. júlí kl 14:00 og þurfa gestir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl 18:00 sunnudaginn 12 júlí.
Símanúmer: 788-3456
Netfang: [email protected]
Aldurstakmark: 18 ára aldurstakmark er á tjaldsvæðið við Suðurhóla. Allir gestir sem ekki eru lögráða þurfa að vera í fylgd með forráðamönnum sínum.
Aðkoma: Vegna umferðatafa sem geta myndast milli Hveragerðis og Selfoss eru ökumenn eindregið hvattir til þess að aka Þrengslin og Eyrarbakkaveg á Selfoss.
Bílastæði: Umferð vélknúina ökutækja m.a. húsbíla er með öllu bönnuð á tjaldsvæðinu og eru gestir beðnir um að leggja bifreiðum sínum á afmarkað svæði þegar þeir hafa komið eigum sínum fyrir á tjaldsvæðinu. Húsbílar geta einnig lagt á afmörkuðu bílastæði. (Umsjónamenn veita nánari upplýsingar við komu)
Rúta: Hópferðabílar sjá um akstur til og frá tjaldsvæðinu föstudags og laugardagskvöld upp á tónleikasvæði hátíðarinnar. Nánari upplýsingar koma síðar.
Leigubílar: Taxi Selfosss sími: 482-3800 og Taxi Árborg sími: 482-1333.
Rusl / Meðferð úrgangs: Ruslatunnur eru víðsvegar á tjaldsvæðinu merkar fyrir rusl eða dósir og eru gestir beðnir um að flokka eins og við á. Ruslagámur er við inn og útgang á svæðinu. Losun ferðasalerna er ekki á svæðinu en hægt er að losa á afgreiðslustöð N1 og Olís Selfossi.
Salerni: Salernisgámar eru á svæðinu.
Vatn: aðgangur að vatni er á svæðinu.
Rafmagn: Ekkert rafmagn er fyrir hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagna.
Lítil sjoppa verður á staðnum
Grill: Aðgát skal höfð við notkun einnota grilla vegna hættu á íkveikju.
Gæludýr: Ekki er heimilt að vera með gæludýr á tjaldsvæðinu.
Ró: Ró skal vera á svæðinu milli kl 24:00 – 07:00 og skal leytast við að forðast allan óþarfa hávaða á svæðinu þar sem byggð er nærri.
Gæsla: Gæsla er á svæðinu
Neyðanúmer lögreglu og slökkviliðs – 112
Tjaldsvæðið er í umsjá Handknattleiksdeildar Selfoss – Sími 788-3456
aðrar reglur
1. Gestir á svæðinu eru beðnir um að virða allar almennar umgengisreglur. Athugið brot á
reglum varðar bottvísun af tjaldsvæðinu.
2. Allar skemmdir sem gestir vinna á aðstöðu tjaldsvæðisins eða á eigum annarra verða
kærðar til lögreglu.
3. Óheimilt er að hafa opin eld á tjaldsvæðinu.
4. Aðgát skal höfð á svæðinu í kringum tjaldsvæðið þar sem byggingarsvæði eru í næsta
nágrenni.
5. Allt ofbeldi er fordæmt og eru þolendur og vitni hvött til að tilkynna um öll slík
mál til lögreglu.
Gesthús tjaldsvæði – 25 ára aldurstakmark (ekki á vegum hátíðarinnar)

Vefsíða Gesthúsa – Tjaldsvæðið er staðsett við skemmtilegt útvistarsvæði í hjarta Selfoss. Um fimm mínútna gangur er í sundlaugina og um 10 mínútna gangur niður í miðbæ.
Svæðið þjónar tjöldum, tjaldvögnum, fellihýsum, hjólhýsum og bílhýsum. Nánari upplýsingar má finna á gesthus.is. Vinsamlega athuguð að aldurstakmark á tjaldsvæðið við Gesthús er 25 ára



