Um Kótelettuna

[layerslider id="15"]

uppruni & markmið

Kótelettan BBQ Festival  er haldin ár hver, aðra helgina í júlí og í ár verður  hún haldinn í 16. sinn, helgina 10.- 12. júlí.
Hátíðin hefur fest sig í sessi sem ein stærsta tónlistar- fjölskyldu- og grillveisla landssins þar sem lögð er höfuðáhersla á að bjóða uppá góða skemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

bbq festival

Íslenskir matvælaframleiðendur skipa stóran sess í
hátíðinni en þar koma saman helstu kjötframleiðendur
og söluaðilar landsins o.fl. til þess að kynna og minna
á þær frábæru vörur sem framleiddar eru á Íslandi.
Gestum og gangandi gefst kostur á því að fara um
svæðið og bragða á íslensku kjöti, grænmeti og öðru góðgæti.  

Stóra Grillsýnininn verður á sýnum stað þar sem hægt er að kynna sér heitustu grillin á markaðnum í dag frá hinum ýmsu framleiðendum. 

Ýmsar keppnir eru háðar en keppt verður um Grillmeistarann 2026  og svo má ekki gleyma keppninni um um Grillpylsu ársins þar sem íslenskir framleiðendur etja kappi!

Flottasta grillveislan, þar sem bæjarbúar eru hvattir til að bjóða heim og halda alvöru grillveislu verður svo að sjálfsögðu verðlaunuð með glæsilegum vinningum.

Fjölskylduhátíð

Yfir daginn er boðið upp í fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna á miðbæjartúninu, m.a. barnaskemmtun, tónleika og margt fleira.

Aðgangur að dagskemmtun er ókeypis en hún er í haldin í Sigtúnsgarðinum
á Selfossi.

tónlistarfestival

Fjölmargir þekktir tónlistarmenn hafa stigið á stokk á Kótelettunni og verður dagskráinn vegleg að vanda
þetta árið.
Tónlistarfestivalið fer fram bæði inni í Hvítahúsinu og einnig á glæsilegu útisviði þar sem engu er til sparað.

Frábær skemmtun þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Miðasalan á tónlistarfestivalið fer fram á  heimasíðu Kótelettunar.

Stjórnendur Kótelettunar bjóða þig hjartanlega velkominn á Selfoss á 16. Kótelettuna með von um að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi og skemmt sér í sátt og samlyndi við umhverfið og náungann. Síðast en ekki síst njóta þess að vera saman, grilla og hafa gaman. Við hvetjum heimamenn til að bjóða vinum og vandamönnum velkomna á Selfoss til þess að njóta hátíðarinnar og alls sem bæjarfélagið hefur uppá að bjóða.